Select Page

Jólagleði kemur til ykkar

Tvær fjörugar jólasýningar fyrir börn 4–11 ára

Leikur, húmor, lifandi tónlist og góður boðskapur — beint inn í leikskóla, grunnskóla og jólaskemmtanir.

30. nóvember – 20. desember

Stúfur og leitin að jólatrénu

Þrautseigja, tónlist og fullt af jólagleði

Stúfur þarf að takast á við ýmsar þrautir á leið sinni að jólatrénu — með hjálp söngs, dans og tveggja jólasveinabræðra.

Sýningin fór sigurför um leik- og grunnskóla landsins í fyrra og snýr nú aftur.

Í hjarta sögunnar er einfaldur en sterkur boðskapur:

Að gefast ekki upp þegar hlutirnir verða erfiðir.

30–35 mínútur · Fyrir 4–11 ára

85.000 kr.

Jólasveinarnir og tröllin

Glæný jólasýning

Kertasníkir og bróðir hans rifja upp eitt örlagaríkt kvöld þegar þeir lentu í óvæntu ævintýri með tröllum.

Fjörug jólasaga með tónlist, húmor og ævintýrum þar sem samheldni og samvinna skipta öllu máli.

30–35 mínútur · Fyrir 4–11 ára

85.000 kr.

Jólasveinar á jólaballið

Jólasveinarnir okkar mæta líka á jólaböll, bekkjarskemmtanir, fyrirtækjaskemmtanir og aðrar jólasamkomur.

Við getum tekið þátt í dagskránni eða komið með gítarinn og séð sjálfir um söng, sprell og jólastuð.

Verð
1 jólasveinn 25.000 kr.
2 jólasveinar 47.500 kr.
3 jólasveinar 67.500 kr.
4 jólasveinar 85.000 kr.

Gerum jólin aðeins skemmtilegri

Við erum að bóka dagana 30. nóvember–20. desember.

Vinsælustu dagarnir og tímarnir fara fyrst, svo ef þið viljið kanna lausa tíma eða fá nánari upplýsingar, hafið samband.